Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Á ég ađ hafa kannanir?

www.123.is/sunns

22. október 2006 klukkan 06:31

www.123.is/sunns

Ég var að blogga hérna ef ykkur langar að kíkja á þaðHlæjandi

Kær kveðja
Sunna Dögg




Sunna Dögg Heimisdóttir
2 athugasemdir

já afi hennar var einmitt prestur

18. október 2006 klukkan 08:25
Halló ég heiti Sunna og er lélegur bloggari!

Ég setti samt inn allar myndirnar mínar frá Costa Rica á www.123.is/sunns þar sem ég ætla eflaust að skipta yfir á þá síðu samt ekki víst ekki örvænta ég læt vita ef út í það fer! Kíkið allavega á þessa siðu þar undir myndir sjáið þið albúmið veiveivei... Ég blogga svo kannski á morgunn eða hinn... eða hinn veit ekki alveg... Ég veit samt að Birna gerði massa færslu svo ef þið örvæntið mikið þá getið þið stolist til þess að kíkja á bloggið hennarGlottandi

sunns
Sunna Dögg Heimisdóttir
3 athugasemdir

Costa Rica

05. október 2006 klukkan 21:14
Jæja góðir hálsar!

þá er mín bara á leiðinni til Costa Rica núna frá og með deginum í dag og við komum heim 16 október.. þetta verður mega stuð hjá okkur erum búnar að ákveða að við förum til Monte Verde í svona ziplance held það heiti það til að renna sér svona eftir línu í fjöllunum.. og svo förum við að skoða Volcán Arenal sem er virkt eldfjall í Costa Rica.. svo eigum við eftir að ákveða framhaldið það er bara hægri eða vinstri.. Pacific eða Carrabian megin en ég held við ætlum að fara kyrrahafsmegin frekar kemur í ljós læt ykkur vita..

Lítið sem ég ætla ykkur að segja úr þessu bara tilkynna þessa brottför mína og lofa ég nú að koma með myndir og meira blogg þegar ég kem heim:-)

Hasta Luego mis amigos !

Sunns

já það er ekki virkt þetta clip board eða hvað  það heitir svo ég gat ekki sett neinn lit á textann og enga broskalla og ekki neitt svo þetta er nú frekar hrátt en komst þó til skila;-)
Sunna Dögg Heimisdóttir
3 athugasemdir

Sunnudagur 1. okt

01. október 2006 klukkan 21:46
Halló gott fólk! Ég er á lífi og allt gengur vel hérna Mexíkó.. hef bara ekki alveg verið í stuði til að blogga eeen ætla bæta úr því Hlæjandi

Það sem er búið að vera að gerast í Calle Sicilia seinustu vikur er það að við skelltum okkur til LA seinustu helgi það var geðveikt gaman tókum langa helgi þ.e. frá fimmtudegi til sunnudags og það var verslað og við fórum í Six flags skemmtigarð. 

 
Annars er búið að vera nóg að gera í skólanum eins og vanalega og einhvernvegin nær maður að redda sér úr þeim verkefnum:D Við ákvaðum að vera heima þessa helgina sleppa því að fara eitthvað þar sem við þurftum að klára verkefni og annað fyrir mánudaginn!

Á föstudaginn fórum við í bíó í lúxus sal á Devil wears prada.. Það var sofið út í gær og verkefni kláruð. Við elduðum kjúkling í kvöldmat og höfðum það gott skelltum okkur svo með Carlosi að hitta Evrio, Nancy, Pilar og Javier. Juan Pablo var að koma til okkar og við þurfum að vinna í verkefni í dag.. best að drífa það af svo ég komist út í sólina... Svalur
 

Bæjó..
 
 

Hey já gleymdi að segja ykkur að ég og stelpurnar erum að fara til Costa Rica næsta fimmtudag í níu daga.. vúhú..

Sunna Dögg Heimisdóttir
3 athugasemdir

halló

17. september 2006 klukkan 02:43
Sunna Dögg Heimisdóttir
4 athugasemdir

Is this love, is this love is this love that i´m feeling....

13. september 2006 klukkan 09:22
vááá ég er búin að vera heillengi að reyna að uploada myndunum mínum á netið og það hefur bara ekki verið að ganga, en góðar fréttir hafði það í gangi hérna heima í kvöld og þær voru að klárast tók um 2 klst! Hissa Ég setti þær líka á aðra myndasíðu þið finnið þær hérna: www.fotki.com/sunnna setti texta og alles við þærHlæjandi 

Jæja helgin var semsagt í einu orði sagt FRÁBÆR! Við lögðum af stað á föstudeginum tókum 19 rútuna og fórum óvart einum stað of langt svo við þurftum að taka leigubíl til baka í Barra de navidad svo við vorum komnar upp á hótelherbergi að verða 3 um nóttina. Sváfum vel í þessu svakalega fína herbergi hef barasta aldrei verið á svona flottu hóteli í hreinskilni sagt. Vöknuðum um 930 pöntuðum morgunmat upp á herbergi, hot pancakes með jarðaberjum og sírópi algjör snilld! hef aldrei smakkað svoleiðis og lifði mig alveg inn í einhverja bíómynd, svona pretty woman fílingurGlottandi Við skelltum okkur svo út á sundlaugabakkann, pöntuðum okkur kokteila og lágum í sólbaði fram eftir degi. Við fórum á Jetsky (sjókött) sjiiiiiii hvað það var gaman ég var að missa það þarna út á sjó brunandi á fullri ferð á bikínibuxunum í björgunarvesti, hoppandi í öldunum næstum flogin af vá hvað ég ætla aftur á svona við næsta tækifæri! Eftir þetta skelltum við okkur aðeins í sólbað og svo upp á herbergi að skipta um föt því jú næst var það hestaferðin!

Tókum Water-taxi yfir í bæinn, var smá sjór á milli, biðum eftir bílnum okkar sem var pallbíll skelltum okkur aftur í á pallinn, leiðsögumaðurinn sagði "this is how we travel in Mexico" haha semsagt það er fólk útum allt aftan á pöllunum ekkert mál. Við sátum á pallinum hlustuðum á Bob Marley á leiðinni gæti lífið orðið tjillaðra?? Við fórum á hestbak meðfram ströndinni með mexíkönskum leiðsögumanni sem var með kúrekahattinn, kúrekastígvélin með svona blingi að neðan og svo að sjálfsögðu sverð til þess að höggva frá trjágreinarnar fyrir okkur á leiðinni upp á fjall þar sem við sáum sólina setjast!Brosandi en á leiðinni upp á fjall lentum við í árás af Moskító og félögum fúff ég var alveg í sjokki þarna og uppskar mitt fyrsta bit sem urðu svo 7 eða eitthvað en ég held samt að stelpurnar séu með um 30-50 bit obobobb ekki alveg nógu gottÞögull sem gröfin 

Við komum upp á hótel fengum okkur kvöldmat og fórum upp á herbergi í sturtu og steinsofnuðum eftir geðveikan dag. Sunnudagurinn fór í það að vakna snemma og skella sér út í sundlaug fram til kl 15 því þá tjékkuðum við okkur út af hótelinu. Við fórum yfir í Barra de navidad og röltum um bæinn í steikjandi hita, vá hvað það var heitt, þangað til að við tókum rútuna heim. Vorum komnar heim að verða 23 uppgefnar og komumst að því að Svala hafði verið rænd í rútunni þegar við allar sofnuðum þá var síminn, myndavélin og peningarnir hennar teknir ÖMULEGT við tókum svoo mikið af myndum í þessari ferð endalaust skemmtilegar myndirÖskrandiFýldur 

Seinustu tveir dagar hafa verið viðburðarlitlir.. bara farið í svefn eftir helgina og að peppa mig upp í að blogga og koma myndum inn fyrir ykkur heimaHlæjandi

Fyrsti hluti annarinnar er búinn, (sem var tilgangurinn með þessari mögnuðu helgarferð) og hann gekk barasta vel 86 í meðaleink, vonandi að hinir gangi jafn vel þá fæ ég auka skróp vikuGlottandi Talandi um skróp viku .... þá erum við stelpurnar að ákveða að fara í 9 daga ferð til Perú og fara í Andesfjöllin og fara til Machu Picchu sjiii það verður geðveikt ég hlakka ekkert smá til! aaaa það er svo erfitt að vera í skóla hérna manni langar svo mikið að ferðast bara útum allt hérna!  

jæja er hætt þessu bulli og farin að sofa aaa fæ að sofa út á morgunn frídagurUllandi ákvað bara að skrifa ykkur núna þar sem þið sjáið það þegar þið mætið í vinnu, skóla tjill heima eða hvað sem er á morgunnGlottandi

Hlakka til að heyra frá ykkur,

Sunns in the sun

Lag dagsins: klárlega Bob Marley og Is this love ..
Sunna Dögg Heimisdóttir
5 athugasemdir

Barra De Navidad og Grand Bay

08. september 2006 klukkan 23:58

Jæja þá er önnur helgi komin nóg búið að vera að gera í skólanum og við ætlum að skella okkur í strandbæ yfir helgina og slappa af! Við leggjum af stað í dag kl 17 (22 á ykkar tímaBrosandi) til Barra de navidad. Hef ekkert meir til að blogga um í bili bara deila þessu með ykkur og ég ætla að vera dugleg að taka myndir svo að þið getið séð eftir helgiHlæjandi 
skil ykkur eftir með nokkrar myndir af staðnum sem ég verð á um helgina...

Þetta er semsagt bærinn ....

GRAND BAY HOTEL ISLA NAVIDAD RESORT -- MANZANILLO, MEXICO

GRAND BAY HOTEL ISLA NAVIDAD RESORT

Þetta er hótelið sem að við pöntuðum okkur fyrir þessa fínu helgarferðUllandi






veivei... vonum svo bara að mínar myndir verði jafn flottarSvalur

Er farin að klára eitt stykki próf áður en að ég skelli mér á ströndina..

Bæjó spæjó
Sunna Dögg

Sunna Dögg Heimisdóttir
2 athugasemdir

blogs

07. september 2006 klukkan 05:00
Miðvikudagar eru Immigration dagar veiveivei...
Við vöknuðum í morgunn og vorum mætta upp á immigration kl 0904 þar sem við áttum að sækja pappírana okkar og fá visað okkar til baka.. Allt kom fyrir ekki en okkur var sagt þegar við komum að þetta yrði ekki tilbúið fyrr en eftir 13 í dag.. frábært... Ég skellti mér þá í Gallerías sem er eitt stærsta mollið hérna í smá dekur fékk mér nýjar neglur sem gekk svona ágætlega miðað við heima en málið er það að hún setti bara glært gel en ekkert bleikt og hvítt heldur naglalakkaði hún frenchið bara á ekki alveg nógu sátt við það en svona er þetta víst hérna í Mexíkó svo ég lifi við þaðGlottandi

Ég kom mer svo heim fékk mér hádegismat og út aftur með stelpunum upp á Immigration þar sem allt gekk vel en tók að sjálfsögðu sinn tíma en hófst á endanum svo núna þarf ég ekki að fara þangað aftur og verður sofið út næsta miðvikudag í tilefni af þvíHlæjandi

Laura er að fara núna á föstudaginn svo þá erum við stelpurnar ég, Svala og Birna eftir í húsinu þar sem Kristín er flutt til Tanyu.

Enn spáð scattered T-storms allstaðar um helgina svo við eigum enn eftir að ákveða hvert verður farið næstu helgi en það verður pottþétt farið eitthvaðBrosandi

Sit í tíma í marketing research og er ekki að ná neinu hér svo ég held ég kíki bara á þetta heima eða bara fyrir próf eða bara seinni tíma vandamál...

Vá ég var að horfa á Silvíu Nótt þegar hún fór í heimsókn til Magna hún er rosaleg...

Bæjó spæjó
Sunna Dögg Heimisdóttir
7 athugasemdir

Lunes

04. september 2006 klukkan 20:39
Jæja hvar skildi ég ykkur nú eftir eftir seinasta blogg… já hún Laura hefur séð af sér þegar við komum heim á föstudaginn var hún búin að skipta internetinu fyrir okkur og reglurnar voru horfnar hmm.. Við komumst svo að því að Estella mamma Juevo hefði talað við hana og sagt henni að við ættum sko alveg að mega vera í húsinu ekki bara í herbergjunum og eldhúsinu..Hissa Hún er allaveganna búin að vera súper nice um helgina og ekkert vesen.

Ég og Svala settum upp þráðlausa internetið alveg sjálfar á föstudaginn og það tók okkur ekki nema um 2 og hálfan tíma að koma því í stand ótrúlega duglegar! svo nú erum við orðnar þráðlausar heima og höfum það gott.GlottandiVið fórum svo ég, Birna og Svala út að borða á Salute með Juan Pablo vini okkar úr skólanum eftir það skelltum við okkur í afmælis-partíið sem var mjög fínt.Hlæjandi


Á laugardeginum var sofið út og skellt sér í þvottahúsið með allann þvottinn fúff erfitt að bera hann allann heim og vá hvað maður hefur það fínt heima með þvottavélina og þurfa ekki að sitja og bíða eftir henni.. Seinni partinn kíktum við í mollið og fórum svo í bíó í lúxus sal á You, Me and Dupree mjög nice svo tókum við því bara rólega það sem eftir var af kvöldiBrosandi

 
Í gær vaknaði ég og las heilan kafla í Human Resources og eftir það verðlaunaði ég mig með sólbaði í allan gærdag upp á þaki þar sem að það var geðveikt veður..Svalur Svo heyrði ég í Sigga og Sindra Degi litla prinsinum mínum sem var 2ja ára í gær hann var algjört æði í símanum talaði og talaði og svo söng hann með mér afmælis sönginn ammmmmli í dag ammmmmli í dag algjört æði að heyra í honum verð nú að segja að ég sakna hans alveg ofboðslega mikið..Gráta

Jæja nóg af því við stelpurnar fórum út að borða í gær á stað sem heitir Chilis eftir hann fórum við á Häagen Dazs og ég fékk mér NY Brownie sjiiiiiii það var rosaleg kaka og ég kláraði ekki og var að springa og held ég hafi algjörlega ofgert maganum mínum með henni og hugsa ég smakki ekki súkkulaði alla þessa viku í skaðabætur fyrir magannÓákveðinn

Lítið annað í fréttum héðan veit ekki hvar fellibylurinn er staddur en vona að hann verði farinn eitthvert fyrir næstu helgi svo við komumst á ströndina og slappa af.. Helgina eftir það er ferð til Mexíkó city sem við ætlum að fara í það verður ábbyggilega mjög gaman. Tíminn líður hratt hér og ekki nema um 11 helgar eftir sem við ferðumst fyrir utan tvær seinustu vikurnar hérna úti sem við höfum frí áður en við komum heim.
 
 

Skil ykkur eftir með tvær spurningar:
1.  Með hverjum er lagið Satisfaction?
2.  Hvað er uppáhalds jólalagið þitt? 

RaggydollsRaggydolls……….Just like you and me!

 
                                                        
Sunns 
Sunna Dögg Heimisdóttir
6 athugasemdir

Súkkulađivaffla

01. september 2006 klukkan 23:53
   +          +  

=

mmmmmmm.....

Sunna Dögg Heimisdóttir
1 athugasemd