Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Á ég að hafa kannanir?

Costa Rica

05. október 2006 klukkan 21:14
Jæja góðir hálsar!

þá er mín bara á leiðinni til Costa Rica núna frá og með deginum í dag og við komum heim 16 október.. þetta verður mega stuð hjá okkur erum búnar að ákveða að við förum til Monte Verde í svona ziplance held það heiti það til að renna sér svona eftir línu í fjöllunum.. og svo förum við að skoða Volcán Arenal sem er virkt eldfjall í Costa Rica.. svo eigum við eftir að ákveða framhaldið það er bara hægri eða vinstri.. Pacific eða Carrabian megin en ég held við ætlum að fara kyrrahafsmegin frekar kemur í ljós læt ykkur vita..

Lítið sem ég ætla ykkur að segja úr þessu bara tilkynna þessa brottför mína og lofa ég nú að koma með myndir og meira blogg þegar ég kem heim:-)

Hasta Luego mis amigos !

Sunns

já það er ekki virkt þetta clip board eða hvað  það heitir svo ég gat ekki sett neinn lit á textann og enga broskalla og ekki neitt svo þetta er nú frekar hrátt en komst þó til skila;-)
Sunna Dögg Heimisdóttir
æjj jú reyndi að setja inn myndir frá því við fórum í dýragarð og til LA eitthvað misheppnað en þó er eitthvað þarna inn á myndasíðunni minni: sunnad.myphotoalbum.com ;)
05. október 2006 klukkan 21:19
Björg
 
Góða ferð snúlla og taktu fult af myndum.. Mér finnst ekkert smá fyndið að þú sért á leiðnni til Costa Rica þar sem ég var fyrir minna en ári;) Mér hefið sko aldrei dottið það í hug þá en líst ekkert smá vel á þig að skella þér yfir... Talaði við fjölskylduna mína úti áðan og þau sögðu að það væri bara mjög gott veður núna, ekki rigning sem er jákvætt þar sem að það er rigningatímabil þarna úti núna..

Það er sko barasta æðislegt í Manuel Antonio eins og ég var búin að segja þér, fallegasta strönd sem ég hef komið á.. Þið verðið svo að kíkja á stað sem er á ströndinni sem heitir Mar y sombra minnir mig, allavegna hann er á ströndinni og á kvöldin er svona diskó/dans/salsa stemming þar og ég dansaði við einhverja stráka þarna allt kvöldið salsa þó ég kynni ekkert í honum, þeir bara snúa manni til og frá, mega stemming skal ég þér segja;-) Sniðugt að gista bara í Quepos og taka svo bara businn yfir á ströndina..

Umm meira man ég ekki í bili, en skemmtið ykkur bara ótrúlega vel þarna... PURA VIDA TICAS..hehe
06. október 2006 klukkan 03:20
hafðu það ógó gaman á Costa Rica.. öfunda þig ekki neitt.. nenei ;)
08. október 2006 klukkan 02:50

Skrifa athugasemd